NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Ráðagóður ráðgjafi óskast!

Hefur þú áhuga á mannréttindum og sjálfstæðu lífi? Vegna aukinna umsvifa óskar NPA miðstöðin eftir öflugri manneskju í ráðgjafahópinn sinn

Starfið felst í því að veita núverandi og væntanlegum notendum með notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) hjá NPA miðstöðinni ráðgjöf er varðar skipulag og framkvæmd aðstoðarinnar. Starfið er spennandi, fjölbreytt og lærdómsríkt og er unnið í lifandi starfsumhverfi sem varðar mikilvæg mannréttindi fatlaðs fólks.

Unnið er á hefðbundnum skrifstofutíma, en vinnutími getur verið að einhverju leyti sveigjanlegur. Sérstaklega verður horft til umsækjenda sem hafa persónulega reynslu af NPA eða sambærilegu og tekið er fagnandi á móti umsóknum frá fötluðu fólki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf og samskipti við félagsfólk og NPA aðstoðarfólk ásamt ýmis konar verkefnum er snúa að framkvæmd NPA, hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og fleira.
  • Aðstoða félagsfólk við að auglýsa eftir og ráða aðstoðarfólk og skipuleggja vaktir.
  • Taka á móti erindum sem berast miðstöðinni og svara fyrirspurnum.
  • Taka þátt í almennum störfum og verkefnum á vegum NPA miðstöðvarinnar.
  • Leiðbeina, styðja og hvetja félagsfólk.
  • Virkja sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt félagsfólks.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði félagsvísinda sem nýtist í starfi er æskileg, til dæmis í fötlunarfræðum, náms- og starfsráðgjöf, þroskaþjálfun, iðjuþjálfun eða félagsráðgjöf.
  • Þjónustulund og jákvætt viðmót.
  • Færni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæði, framtakssemi og ábyrgð í starfi.
  • Sveigjanleiki og aðlögunarhæfni í ólíkum verkefnum og breytilegu starfsumhverfi.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar. - Fullt starf á skrifstofu er 36 klst. á viku.
Auglýsing stofnuð15. mars 2024
Umsóknarfrestur26. apríl 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar