NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Hlutastarf í Breiðholtinu

Icelandic speaking only please

Sælar, ég óska eftir áreiðanlegum og hraustum konum á aldrinum 25 til 45 ára sem eru tilbúnar til þess að aðstoða mig við allt milli himins og jarðar.

Vinnutíminn getur verið sveigjanlegur en um er að ræða 5-8 tíma í senn, dag- kvöld- og helgarvaktir. Möguleiki er á lengri vöktum og auka vinnu.

Ég nota hjòlastòl og þarf því aðstoð við flest allt sem viðkemur mér og heimilinu.

Ég fer í sund tvisvar í viku og þarf aðstoð við að koma mér ofaní og uppúr. Aðstoðarfólk þarf ekki að fara með ofaní, nema þau vilji taka smá sundsprett í leiðinni.

Ég fer í búðir, rek heimili, á tvö börn, einn eiginmann og lítinn sætan kött þannig að það er alltaf nóg að gera.

Mikilvægt er að eiga auðvelt með að taka leiðsögn og draga sig í hlé. Traust, virðing og stundvísi eru nauðsynlegir kostir í starfinu.

Aðstoðarfólk starfar eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf sem gerir mér kleift að sinna þeim athöfnum sem ég myndi sjálf framkvæma ef ekki væri fyrir líkamlega skerðingu mína.

Laun eru samkvæmt sér kjarasamningum við eflingu sem hægt er að sjá inn á vefsíðu NPA miðstöðvarinnar npa.is

Hafðu endilega samband ef þú hefur àhuga og við getum rætt starfið betur.

Hlakka til að heyra frá ykkur :)

Auglýsing stofnuð15. apríl 2024
Umsóknarfrestur9. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Breiðholt
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Ökuréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar