UPS Express ehf.
UPS Express ehf.
UPS Express ehf.

Þjónustufulltrúi á Tollasviði

Express ehf leitar eftir þjónustulunduðum einstaklingi í 100% starf þjónustufulltrúa tollasviðs. Um er að ræða sumarstarf með möguleika á framtíðarstarfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Vinnutími er frá 08:00-16:00 alla virka daga

Express ehf. er umboðsaðili, Authorized Service Contractor, fyrir UPS á Íslandi. UPS er eitt stærsta og öflugasta hraðsendingafyrirtæki heims með þjónustunet til rúmlega 220 landa. UPS býður uppá hraðsendingaþjónustu, almenna flugfrakt, sjóflutninga, vöruhúsastýringu og dreifingu fyrir viðskiptavini sína. Daglega afhendir UPS rúmlega 25 milljónir sendinga um allan heim

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Tollskjalagerð

·         Skráning gagna

·         Símsvörun og samskipti í gegnum tölvupósta

·         Önnur tilfallandi verkefni

 

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun

·         Reynsla af tollskjalagerð kostur

·         Reynsla af Navision kostur

·         Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

·         Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar

·         Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli

·         Hreint sakavottorð er skilyrði

Auglýsing stofnuð23. apríl 2024
Umsóknarfrestur2. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar