NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!

Aðstoðarfólk óskast

Ég heiti Fanney Ósk Eyjólfsdóttir og er 31 árs kona með mikinn áhuga á mínu eigin sjálfstæða lífi. Ég er með cerebral palsy – fjórlömun sem þýðir að ég er háð öðrum til líkamlegra athafna, þar af leiðandi þarf aðstoðarfólk mitt að geta tileinkað sér viðeigandi aðferðir í aðstoð við mig.

Ég er opinn húmoristi sem tekur sér ekki of alvarlega. Ég er að leitast eftir einstaklingum sem geta aðstoðað mig við að lifa mínu lífi. Vinnan er fjölbreytt og skemmtileg og fær starfsfólk að taka virkan þátt í skipulagi starfsins.

Mig vantar manneskju í 100% starf og svo nokkrar manneskjur sem geta verið í afleysingum. Vaktirnar eru oftast á morgnana og kvöldin en stundum næturnar.

Ég á minn eigin bíl og þarf umsækjandi því að hafa ökuréttindi. Ég bý í Úlfarsfelli.

Hæfnikröfur:

- Íslenskukunnátta skilyrði

- Enskukunnátta kostur

- Stundvísi

- Almenn ökuréttindi skilyrði

- Reynsla af líkum störfum ekki skilyrði, en kostur.

- Aðeins umsækjendur 20 ára og eldri koma til greina.

Auglýsing stofnuð5. apríl 2024
Umsóknarfrestur1. maí 2024
Staðsetning
Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar