

Process Optimization Specialist
***To see this job description in English, please visit: https://jobs.50skills.com/icelandair/en/16954 ***
Fjármálasvið Icelandair er á umbótavegferð. Við leitum að sjálfstæðri og ófeiminni manneskju til að slást í hópinn og taka með okkur sprett í aðgerðagreiningu vinnu- og verklags með það fyrir augum að auka sjálfvirkni, eyða sóun og gera okkur beittari og betri.
Vinnan snýst um að greina tækifæri til að ná fram umbótum í náinni samvinnu við aðrar deildir fjármálasviðs sem og þvert á félagið allt til að tryggja að við sóum sem minnstum tíma í óþarfa handtök. Rétta manneskjan elskar skilvirkni og verklag sem virkar, hefur áhuga á einföldun og hagræðingu vinnulags og verkferla, vill vinna í hröðu og alþjóðlegu umhverfi, er létt og ljúf í viðmóti, sér glasið frekar sem hálf-fullt, er sjálfstæð og líður vel með að veita og fá hreinskiptna endurgjöf.
Ekki er gerð krafa um reynslu af sambærilegum störfum. Starfið hentar einstaklingi með hugarfar og getu til að takast á við neðangreindar áskoranir.











