
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu.
Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu.
Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín.
Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.

Öflugur sjúkraþjálfari í hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir sjúkraþjálfara til að sinna hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku. Um er að ræða 50-70% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. mars nk. eða eftir nánara samkomulagi.
HH Seltjarnarnesi og Vesturbæ leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, góða samvinnu fagstétta og sveiganlegan vinnutíma. Á stöðinni starfa heimilislæknar, sálfræðingur, hjúkrunarfræðingar ásamt öðru heilbrigðisstarfsfólki og riturum.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem veitt er fyrstu línu þjónusta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tekur á móti skjólstæðingum sem hafa fengið uppáskrifaðan hreyfiseðil frá heilbrigðisstarfsmanni og framkvæmir viðeigandi mælingar, setur upp hreyfiáætlun í samráði við skjólstæðing og fylgir henni eftir
- Metur og veitir ráðgjöf varðandi stoðkerfisvanda skjólstæðinga skv tilvísun frá lækni
- Greinir, metur og vinnur sjálfstætt að úrlausn mála eftir þeim gögnum sem fyrir liggja
- Skráir og fylgir eftir meðferð skjólstæðinga
- Nýtir faglega þekkingu til að forgangsraða og leysa viðfangsefni
- Veitir fræðslu til starfsfólks heilsugæslunnar
- Leiðbeinir samstarfsfólki
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggilt sjúkraþjálfarapróf
- Þriggja ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari
- Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku og enskukunnátta
Auglýsing birt2. febrúar 2024
Umsóknarfrestur14. febrúar 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurströnd 14, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Sjúkraliði - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Seltjarnarnes
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Fjörður
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðingur notendaaðstoð - deild rafrænnar þjónustu HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Ljósmóðir - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Sambærileg störf (5)




