Kjarkur endurhæfing
Kjarkur endurhæfing
Kjarkur endurhæfing

Sjúkraþjálfari

Kjarkur endurhæfing óskar eftir sjúkraþjálfara til starfa. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem áhersla er lögð á góða teymisvinnu. Starfshlutfall er umsemjanlegt og gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Kjarkur endurhæfing er endurhæfingarstofnun sem veitir einstaklingum á aldrinum 18 – 67 ára áframhaldandi endurhæfingu eftir að frumendurhæfingu lýkur. Markmið þjónustunnar er að styðja einstaklinga við að aðlagast breyttum aðstæðum og auka hæfni og þátttöku í daglegu lífi.

Hjá Kjarki endurhæfingu starfar þverfaglegur hópur fagfólks við endurhæfingu.

Sjúkraþjálfari sinnir almennri sjúkraþjálfun á öllum stigum endurhæfingar. Sjúkraþjálfari metur og skipuleggur íhlutun í samráði við þjónustuþega og aðra starfsmenn. Sjúkraþjálfari skráir og metur árangur sjúkraþjálfunar, úthlutar verkefnum og ber faglega ábyrgð á vinnu þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn sjúkraþjálfun á öllum stigum endurhæfingar
  • Mat og skipulag meðferðar
  • Skráning og mat árangurs sjúkraþjálfunar
  • Þátttaka í þverfaglegum teymum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptafærni
  • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu er kostur
  • Lausnamiðuð og sjálfstæði í starfi
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Virkt starfsmannafélag
  • Styttri vinnuvika
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur12. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hátún 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samviskusemi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar