
Eignaumsjón hf
Eignaumsjón hf. er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og brautryðjandi í þessari þjónustu hér á landi. Fyrirtækið var stofnað haustið 2000 og býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu í rekstri fjöleignarhúsa, bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæðis.
Gildi Eignaumsjónar eru framsækni, öryggi og fagmennska og markmið okkar er að veita framúrskarandi þjónustu þar sem áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla.
Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og góðan starfsanda. Hjá okkur starfa nú um 65 einstaklingar, öflugur hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr teymavinnu og góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og umhverfi sem öllum líði vel í. Vinnan er bæði krefjandi og skemmtileg og liðsheildin góð, sem skilar sér í árangri og líflegu vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á samvinnu og fagmennsku. Eignaumsjón leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem efla það og styrkja. Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum.

Öflugur bókari
Óskum eftir að ráða öflugan bókara
Óskum eftir að ráða öflugan bókara á fjármálasvið Eignaumsjónar vegna aukinna verkefna. Við leitum að áhugasömum og lífsglöðum starfsmanni, sem hefur gaman af tölum og vill auka getu sína í síbreytilegu og lifandi starfsumhverfi meðal góðra samstarfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Marktæk starfsreynsla af sambærilegum störfum
Mjög góð Excel kunnátta
Þekking á DK bókhaldskerfi kostur
Áhersla lögð á drifkraft, frumkvæði, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð
Viðkomandi þarf einnig að vera lipur í mannlegum samskiptum og geta unnið sjálfstætt, sem og í hópi
Helstu verkefni og ábyrgð
Færsla bókhalds og afstemmingar
Gerð og yfirferð ársreikninga
Framkvæmd rekstraruppgjöra
Samskipti við viðskiptavini Eignaumsjónar varðandi bókhald, reikninga, kostnaðarskiptingu, innheimtu og áætlanir
Samskipti við þjónustuaðila fyrir hönd viðskiptavina Eignaumsjónar
Önnur fjölbreytt dagleg störf
Auglýsing birt20. júlí 2022
Umsóknarfrestur15. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingÁrsreikningarDKMicrosoft ExcelUppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður Fjárhagsdeildar
Landsbankinn

Verkefnastjóri þjónustu - Tímabundið starf
Coca-Cola á Íslandi

Sérfræðingur í fasteignamati og þróun matsaðferða
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Greiningasérfræðingur / Financial Analyst
Alcoa Fjarðaál

Sérfræðingur í viðskiptaumsjón
Seðlabanki Íslands

Ráðgjafi viðskiptakerfa
Advania

Viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu
Kvika eignastýring hf.

Bókari
Norðanfiskur ehf.

Fleet manager
Icelandair

Framkvæmdarstjóri - öflugt félag á byggingamarkaði
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Viðskiptastjóri hugbúnaðarlausna
Boðleið Þjónusta ehf.

Verkefnastjóri í samningateymi innkaupadeildar
Landspítali