

Náms- og starfsráðgjafi í Lækjarskóla
Lækjarskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum náms- og starfsráðgjafa í 100% starfshlutfall
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru um 450 talsins. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Fyrir nokkru hófst innleiðing á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að standa vörð um nám og velferð nemenda
- Að taka þátt í forvarnarverkefnum skólans
- Er í eineltisteymi skólans
- Að vera trúnaðarmaður og talsmaður nemenda
- Að veita nemendum, foreldrum og starfsfólki ráðgjöf varðandi nám, námstækni, námsvenjur, líðan, kvíða og samskiptavanda
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi
- Geta til að vinna sjálfstætt
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góða íslenskukunnátta
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Umsóknarfrestur er til og með 4. september 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir G. Dögg Gunnarsdóttir skólastjóri með tölvupósti [email protected]
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.


































