

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast í Vinaminni
Vilt þú taka þátt í að skapa öruggt og hlýlegt umhverfi þar sem börn fá að vaxa og dafna?
Leikskólinn Vinaminni sem er staðsettur í Asparfelli 10 í Reykjavík leitar að leikskólakennara eða leiðbeinanda. Vinaminni er einkarekinn leikskóli sem tók til starfa árið 1994 og þar dvelja um 85 börn á aldrinum 1-6 ára á fjórum deildum.
Vinaminni bíður upp á hlýlegt, metnaðarfullt og faglegt starfsumhverfi og skemmtilegt samstarfsfólk. Virðing, gleði og traust eru gildi skólans sem endurspeglast í starfi hans.
Einkunnarorð leikskólans er leikurinn á vísdóm veit þar sem leikurinn er kjarninn í öllu námi og þroska barna og er áhersla lögð á félagsþroska og málþroska í starfi skólans.
Það er akkur fyrir börnin í Vinaminni að fá þig til liðs við okkur og efla það góða starf sem unnið er í skólanum.
Kynntu þér betur skemmtilegt og fræðandi starf Vinaminnis hér, við hlökkum til að heyra frá þér.
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna
- Starfar með börnum í leik og starfi og stuðlar að vellíðan þeirra
- Tekur þátt í faglegu starfi deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
- Framfylgir faglegri stefnu leikskólans
- Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
- Þolinmóður og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Gott vald á íslenskri tungu
- Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi
Frír matur












