

Skóla- og frístundaliði - Setbergsskóli
Setbergsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50 - 70% starfshlutfall.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 440 talsins. Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum snyrtilegum yfir daginn
- Aðstoðar í matsal skólans
- Fylgist með og aðstoðar nemendur í leik og starfi
- Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla og áhugi af starfi með börnum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 6645880 eða í gegnum netfangið [email protected].
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.













































