

Skóla- og frístundaliði í nemendaeldhús – Áslandsskóli
Við óskum eftir skóla- og frístundaliða í 75%-100% framtíðarstarf við aðstoð í nemendaeldhúsi. Í nemendaeldhúsi fer fram undirbúningur og aðstoð við framleiðslu á mat fyrir nemendur og starfsfólk.
Áslandsskóli var stofnaður árið 2001 og er staðsettur í Áslandshverfi í Hafnarfirði. Áslandsskóli er heildstæður grunnskóli með 1.-10.bekk og eru nemendur um 430 talsins. Einkunnarorð Áslandsskóla eru samvinna, ábyrgð, tillitsemi og traust. Áslandsskóli er heilsueflandi grunnskóli og er unnið markvisst að þeim málum innan skólans. Lögð er áhersla á að nemendur fái námsefni við hæfi og þrói þannig og þroski hæfileika sína með markvissum hætti. Í skólanum er lögð áhersla á vellíðan nemenda og góðan námsárangur.
Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum, styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda og skapa jákvæðan skólabrag.
Skólinn byggir stefnu sína á fjórum stoðum náms og menntunar sem eru: Allar dygðir, Hnattrænn skilningur, Þjónusta við samfélagið, Að gera allt framúrskarandi vel.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoð í nemendaeldhúsi
- Undirbúningur og frágangur í nemendaeldhúsi
- Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
- Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
- Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Ekki er gerð krafa um ákveðna menntun
- Reynsla af starfi í mötuneyti kostur
- Áhugi á að starfa í skólaumhverfi
- Góð íslenskukunnátta kostur
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
- Geta til að vinna undir álagi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnur Elfa Guðmundsdóttir aðstoðarskólastjóri, [email protected], og Hálfdan Þorsteinsson aðstoðarskólastjóri [email protected].
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 22.08.2025
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins











































