

Stuðningsstarfsmenn óskast í hlutastörf
Frístundaleiðbeinandi með umsjón - Miðbergi
Frístundamiðstöðin Miðberg óskar eftir starfsfólki í frístundaheimilin veturinn 2025-2026.
Skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar. Á frístundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur.
Þar starfa frístundaráðgjafar, frístundaleiðbeinendur og stuðningsstarfsfólk og eru þau lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Frístundamiðstöðin Miðberg er með laus störf á eftirfarandi frístundaheimilum: Álfheimum við Hólabrekkuskóla, Hraunheimum við Hraunberg, Vinaheimum við Ölduselsskóla og Vinaseli við Seljaskóla.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Í boði eru hlutastörf 30-50% eftir hádegi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Herdís Snorradóttir í síma 411-5750 og tölvupósti [email protected]
- Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna samkvæmt samþykktri einstaklingsáætlun.
- Veita einstaklingsbundinn stuðning í samræmi við leiðbeiningar foreldra, forstöðumann og ráðgjafaþroskaþjálfa.
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
- Leiðbeina börnum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og annað starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum með sérþarfir.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Færni í samskiptum













