

Næturvaktir/vaktavinna í Garðabæ og Reykjavík
Ás styrktarfélag veitir fólki með fötlun fjölbreytta og metnaðarfulla þjónustu. Við leitum að þroskaþjálfum, félagsliðum og stuðningsfulltrúum í vaktavinnu.
Hlutverk starfsfólks í búsetu er fyrst og fremst fólgið í því að aðstoða íbúa í daglegu lífi og efla sjálfstæði þeirra.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og tala íslensku.
Starfsmaður óskast í vaktavinnu á heimili í Garðabæ, í Unnargrund.
Annars vegar í 70 % starfshlutfall á næturvöktum og hins vegar tímabundin staða (með möguleika á áframhaldandi ráðningu) 100 % starfshlutfall dag/kvöld/helgarvaktir.
Starfsmaður óskast í vaktavinnu á heimili í Reykjavík, á Lautarveg.
Þar er laus staða í 60 % starfshlutfall á næturvöktum.
Stöðurnar eru lausar strax eða eftir samkomulagi.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.











