
Sérkennslustjóri - Leikskólinn Grænaborg
Leikskólinn Grænaborg í Suðurnesjabæ leitar að metnaðarfullum og framsæknum sérkennslustjóra sem hefur brennandi áhuga á velferð og þroska barna og vill leiða faglegt starf í sérkennslu.
Leikskólinn er sex deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla m.a. á að efla styrkleika barna með hreyfingu, náttúru, sköpun og útiveru að leiðarljósi. Í skólanum eru börn á aldrinum 18 mánaða til grunnskólaaldurs.
Leikskólinn er staðsettur í nýlegu og vel búnu húsnæði við Byggðaveg í Sandgerði, umkringdur fallegri náttúru sem nýtist vel í daglegu starfi með börnunum. Starfsmannahópurinn telur um 40 starfsmenn og í skólanum eru allt að 134 börn.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra.
- Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskóla
- Ber ábyrgð á nánu samstarfi og miðlun upplýsinga milli sérkennsluráðgjafa/sérkennslufulltrúa leikskóla og starfsmanna leikskólans.
- Hefur umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu.
- Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu.
- Hefur yfirumsjón með að áherslum um kennslu annarra sérfræðinga sé framfylgt í leikskólanum og að skýrslur séu gerðar.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu í leikskólanum og situr fundi og viðtöl með þeim. Veitir þeim stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
- Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður felur honum.
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Þekking og/eða reynsa af sérkennslu og stuðningi við börn með fjölbreyttar þarfir er kostur.
- Reynsa af starfi með börnum á leikskólaaldri.
- Þekking á gerð einstaklingsnámsskráa, skráningu og mati á framförum er kostur.
- Góð hæfni í samskiptim og samstarfi við börn, foreldra, starfsfólk og sérfræðinga.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti.
Skilyrði fyrir ráðningu er hreint sakarvottorð.
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags .
Umsóknarfrestur er til og með 4.október 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Elsa Hannesdóttir, leikskólastjóri, í tölvupósti á netfangið [email protected]
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Íslenska










