RÚV
RÚV
RÚV

Menningarritstjóri

RÚV leitar að menningarritstjóra. Í starfinu felst mótun og framsetning menningarefnis fyrir vef og þátttaka í ritstjórn menningarefnis þvert á deildir. Starfið er krefjandi og fjölbreytt og reynir á leiðtogahæfni og framsýni.

Menningarritstjóri getur tekið frumkvæði og leiðbeint öðrum og stuðlað að virku og skapandi samstarfi. Hann vinnur náið með frétta- og dagskrárgerðarfólki, frétta- og dagskrárstjórum. Starfið heyrir undir dagskrárstjóra Rásar 1.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ritstjórn, framleiðsla, hugmyndavinna og þátttaka í efnisvali.
  • Fagleg rýni, leiðsögn og stuðningur í ritstjórnarvinnu.
  • Yfirsýn og skipulagning verkefna.
  • Þróun og innleiðing nýrra leiða í framsetningu og miðlun menningarefnis.
  • Efling þátttöku og aðgengis ólíkra hópa í samræmi við stefnu RÚV.
  • Þátttaka í mótun dagskrárstefnu.
  • Stuðla að góðum samskiptum og samstarfi milli starfseininga.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af blaðamennsku, sjónvarps- eða fjölmiðlavinnu. Reynsla af ritstjórn er kostur.
  • Reynsla af og þekking á íslensku menningarlífi.
  • Leiðtogahæfni og geta til að leiðbeina og efla aðra í starfi.
  • Skipulagshæfni, framsýni, frumkvæði og hæfni til að sinna fjölbreyttum verkefnum.
  • Framúrskarandi samskipta- og samvinnufærni.
  • Framúrskarandi vald á íslenskri tungu.
Auglýsing birt30. mars 2026
Umsóknarfrestur19. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar