Klasi
Klasi

Verkefnastjóri á framkvæmdasviði

Klasi leitar að öflugum verkefnastjóra á framkvæmdasviði. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf þar sem gefst kostur á að koma að umfangsmiklum framkvæmdaverkefnum.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Verkefnastjórnun framkvæmda.
  • Kostnaðarmat framkvæmdaverkefna.
  • Þátttaka í hönnunarferli framkvæmdaverkefna og samningagerð.
  • Rekstur og eftirfylgni verksamninga.
  • Samskipti og samvinna við ráðgjafa, verktaka og aðra hagsmunaaðila.


Hæfni og eiginleikar:

  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, byggingafræði eða sambærilegt.
  • Reynsla af verkefnastjórnun framkvæmda.
  • Góð greiningarhæfni ásamt hæfni til að setja fram tölulegar upplýsingar á aðgengilegan hátt.
  • Framúrskarandi samskiptafærni, jákvætt viðhorf og sveigjanleiki.
  • Frumkvæði, metnaður og gagnrýnin, lausnamiðuð hugsun.


Klasi er þekkingarfyrirtæki í þróun fasteigna og hefur í yfir 20 ár komið að mörgum víðamiklum fasteignarþróunar- og framkvæmdaverkefnum. Frá upphafi hefur félagið verið leiðandi á sviði fasteignareksturs og fasteignaþróunar á Íslandi, bæði í eigin verkefnum og verkefnum fyrir ótengda aðila.


Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Nánari upplýsingar veita Hilmar G. Hjaltason ([email protected]) og Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]), hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar