Sýn
Sýn
Sýn

Fréttamaður á fréttastofu Sýnar

Við leitum að öflugum fréttamanni í sumarstarf á fréttavef okkar Vísi. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu og unnið aðra hverja helgi. Líklegt er að eftir sumarið verði í boði hlutastarf sem hentar vel með námi.

Á fréttastofunni starfar samhentur hópur fólks sem hefur mikinn áhuga á málefnum líðandi stundar og metnað fyrir vönduðum fréttaflutningi. Fréttir eru unnar í fjölbreyttri framleiðslu sem einkennist af frumkvæði, sköpunarkrafti og áræðni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Brennandi áhugi á fréttum og þekking á samfélaginu
  • Reynsla af blaða- og fréttamennsku er æskileg
  • Mjög gott vald á íslenskri tungu, bæði í ræðu og riti
  • Geta til að vinna hratt og örugglega undir álagi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og öryggi í framkomu
Fríðindi í starfi

Hvað höfum við að bjóða þér?

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Spennandi verkefni
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Möguleika á starfsþróun
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift
  • Streymisveitu Sýnar og Viaplay
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Greinaskrif
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)