

Deildarstjóri Viðskiptafræðideildar
Laust er til umsóknar fullt starf deildarstjóra Viðskiptafræðideildar á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands. Deildarstjóri tilheyrir stjórnsýslu sviðs og er rekstrarstjóri Félagsvísindasviðs næsti yfirmaður hans. Deildarstjóri vinnur jafnframt náið með deildarforseta Viðskiptafræðideildar. Við Viðskiptafræðideild er boðið upp á fimm grunnnámslínur, þrettán meistaranámslínur auk doktorsnáms. Árlega brautskrást um 300 nemendur úr námi við deildina og þar starfa hátt í fjörutíu fastir kennarar og fjöldi stundakennara.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og eftirfylgni með fjármálum og daglegum rekstri deildar í samstarfi við rekstrarstjóra og deildarforseta
- Fjárhagsáætlanagerð og eftirfylgni hennar í samvinnu við deildarforseta
- Skipulag funda og viðburða á vegum deildar og eftirfylgni með ákvörðunum
- Samstarf og aðstoð við deildarforseta í daglegum störfum og við framkvæmd stefnu deildar
- Samstarf við kennara deildar og þátttaka í samhæfingu daglegrar starfsemi.
- Teymisvinna innan Félagsvísindasviðs m.a. í fjármálum, markaðs- og kynningarmálum og móttöku nýs starfsfólks í deild
- Þátttaka í þróun samstarfs deildar við atvinnulíf og stuðningur við verkefni sem efla tengsl deildarinnar við fyrirtæki og stofnanir
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf er kostur
- Reynsla af fjármálum og/eða rekstri
- Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er kostur
- Góð tölvufærni, þar á meðal í Excel
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
- Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Frumkvæði, nákvæmni, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Sæmundargata 10, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Samningastjóri
Veitur

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Verkefnastjóri
Farskólinn

Schengen, fjármál og styrkir – er þetta starf fyrir þig?
Dómsmálaráðuneytið

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Deildarstjóri í Leikskólann Lundarsel-Pálmholt
Akureyri

Glerárskóli: Deildarstjóri stoðþjónustu
Akureyri

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands

Leikskólakennarar óskast
Kópasteinn

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland