
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst hefur í meira en hálfa öld menntað fólk til áhrifa og ábyrgðar í íslensku samfélagi. Háskólinn leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar og hefur verið leiðandi hér á landi í uppbyggingu og þróun stafrænnnar menntunar á háskólastigi.

Verkefnastjóri þróunar fjarnáms og kennslukerfa
Háskólinn á Bifröst leitar að öflugum og framsæknum verkefnastjóra til starfa í 100% stöðu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem áhersla er lögð á þróun stafrænnar kennslu, fjarnáms og kennslukerfa. Starfið er tvíþætt: annars vegar felur það í sér umsjón og þróun kennslukerfa og hins vegar þátttöku í þróun fjarnáms ásamt stuðningi við kennara í stafrænu kennsluumhverfi.
Starfsstöðvar háskólans eru í Reykjavík og á Hvanneyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróun á kennslukerfi háskólans (Canvas).
- Innleiðing og eftirfylgni breytinga á kennslukerfi háskólans.
- Þróun og innleiðing lausna í stafrænum kennsluháttum og fjarnámi.
- Þróun og innleiðing breytinga í próffræðum í stafrænu umhverfi.
- Tæknileg og fagleg aðstoð við kennara, m.a. varðandi upptökur á fyrirlestrum og miðlun kennsluefnis.
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við framkvæmdastjóra kennslu og upplýsingatæknisviðs.
Starfsmaður skal í störfum sínum fylgja reglugerð Háskólans á Bifröst, gæðahandbók háskólans og skriflegum tilskipunum og leiðbeiningum á hverjum tíma.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistaranám á sviði menntunarfræða eða á öðru sviði sem nýtist í starfi.
- Reynsla af þróun á kennslu og/eða prófakerfum er kostur.
- Góð almenn tölvuþekking og þekking á stafrænum kennsluháttum.
- Reynsla af kennslu og þekking á háskólasamfélaginu er kostur.
- Menntun eða reynsla af upplýsingatækni í kennslu og námi er kostur.
- Góð hæfni í stýringu verkefna og skipulagshæfni.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og rík þjónustulund.
- Góð samskiptahæfni og færni til að vinna með fjölbreyttum hópum.
- Góð íslensku og ensku kunnátta bæði í rituðu og töluðu máli.
Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hvanneyri, 311 Hvanneyri
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Samningastjóri
Veitur

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Verkefnastjóri
Farskólinn

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær

Verkefnastjóri skipulagsmála á umhverfis- og framkvæmdasviði
Reykjanesbær

Verkefnastjóri skráninga
Lyfjastofnun

Íshokkísamband Íslands leitar að starfsmanni í 40% tímabundið starf
Íshokkísamband Íslands

Verkefnastjóri á meðferðarheimilinu Esju
Barna- og fjölskyldustofa

Rannsóknartæknir
BM Vallá

Kennsluráðgjafi hjá Fjarðabyggð með áherslu á leikskóla
Fjarðabyggð