
Sérfræðingur á eigna- og viðhaldssviði
Við hjá Félagsbústöðum erum að leita að öflugum sérfræðing til starfa á eigna- og viðhaldssvið. Við leitum að kraftmiklum og fjölhæfum einstakling til að sjá um nýframkvæmdir og umfangsmiklar viðhaldframkvæmdir á eignum félagsins.
Félagsbústaðir er öflugt og traust fasteigna- og þjónustufyrirtæki á leigumarkaði með yfir 3.200 íbúðir til útleigu í Reykjavík. Á skrifstofu félagsins starfa að jafnaði 30 manns í anda gilda um samvinnu, virðingu og góða þjónustu.
Félagsbústaðir eru sjálfstætt hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar og í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi.
Nánari upplýsingar um Félagsbústaði má finna á www.felagsbustadir.is.
Helstu verkefni:
-
Skipulag, umsjón og eftirlit með nýframkvæmdum
-
Skipulag, umsjón og eftirlit með stærri viðhaldsframkvæmdum
-
Þarfagreining verkefna
-
Áætlanagerð og kostnaðargreiningar
-
Verkefna- og gæðastjórnun
-
Umsjón með gerð útboðsgagna
-
Samningagerð
-
Verkeftirlit
-
Skráning í gagnagrunna.
-
Samskipti við hönnuði, verktaka og fl.
Menntunar- og hæfniskröfur:
-
Háskólapróf sem nýtist í starfi.
-
Iðnmenntun er kostur
-
Reynsla og þekking á sviði fasteignaframkvæmda
-
Reynsla af áætlanagerð og verkefnastjórnun
-
Hæfni og færni í notkun upplýsingakerfa
-
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Góð samskiptafærni, samviskusemi og lausnamiðuð hugsun
Íslenska










