
Mannauðssérfræðingur
Við tökum tæknina persónulega
Wise ætlar sér stóra hluti í framtíðinni og leitar að fólki sem vill taka þátt í því. Að móta. Að skapa. Að þróa. Markmið okkar er að vera leiðandi í viðskiptalausnum á Íslandi og leiðandi í sjávarútvegslausnum á heimsvísu. Við erum sterkur hópur með mikla reynslu sem við miðlum með þjónustu sem skiptir máli. Tæknin er hluti af lífi okkar og við tökum hana persónulega.
Við ætlum að skapa framtíðina með okkar starfsfólki og um leið skapa framúrskarandi vinnustað.
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingum sem hafa brennandi áhuga og metnað til að takast á við skemmtileg, krefjandi og umfram allt fjölbreytt verkefni. Jákvæðum einstaklingum sem hafa drifkraft, úthald, samkennd og lipurð í mannlegum samskiptum.
Mannauðssérfræðingur
Wise auglýsir eftir öflugum einstaklingi í starf mannauðssérfræðings. Um er að ræða nýtt starf hjá Wise og því leitum við eftir drífandi einstaklingi með skýra sýn, faglega þekkingu og reynslu.
Mannauðssérfræðingur vinnur náið með framkvæmdastjórum og forstjóra Wise og tilheyrir fjármálasviði Wise.











