Mannauðsfulltrúi á Húsavík
Kjarnafæði Norðlenska hf. óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í 50-60% starf mannauðsfulltrúa í starfsstöð fyrirtækisins á Húsavík. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf sem unnið er í samstarfi við mannauðsdeild fyrirtækisins á Akureyri. Æskilegt að umsækjendur geti hafið störf eigi síðar en 1. nóvember.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Jóna mannauðsstjóri í síma 469 4506 eða jona@kn.is. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um hér í gegnum Alfreð eða senda ferilskrá á netfangið jona@kn.is fyrir 25. september nk. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Kjarnafæði Norðlenska hf. er eitt öflugasta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins með starfsstöðvar á Akureyri, Blönduósi, Húsavík og Svalbarðseyri auk þess að vera með söluskrifstofu á höfuðborgarsvæðinu. Við erum með virka jafnréttisáætlun og hvetjum öll áhugasöm til að sækja um störf hjá fyrirtækinu óháð kyni.
Umsjón með tímaskráningakerfi og aðstoð við verkstjóra vegna yfirferðar á tímaskráningum í starfsstöðvum á Akureyri og Húsavík
Undirbúningur launavinnslu í samvinnu við launafulltrúa
Samantekt á upplýsingum fyrir skattaskýrslugerð vegna starfsfólks sem er tímabundið ráðið erlendis frá
Umsjón með starfsmannahúsum á Húsavík
Ráðningar fyrir sláturtíð og umsjón með móttöku starfsmanna
Ýmis tilfallandi verkefni á mannauðssviði í samráði við mannauðsstjóra
Þátttaka í starfsþróun og fræðslu m.v. stefnu á hverjum tíma
Starfssvið starfsmannsins tekur þeim breytingum sem kunna að verða á skipulagi fyrirtækisins
Menntun sem nýtist í starfi, góð þekking á kjarasamningum
Haldbær reynsla af sambærilegum störfum
Mjög góð almenn tölvufærni, reynsla af notkun upplýsingatæknikerfa
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Góð samskiptafærni, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð