Leikskólakennari/leiðbeinandi í Urriðaból
Leikskólinn Urriðaból er 12 deilda leikskóli, staðsettur á tveimum starfstöðvum, sex deildir við Kauptún 5 og sex deildir við Holtsveg 20 í fallegu og fjölbreyttu umhverfi í Urriðaholti 210 Garðabæ. Í leikskólanum dvelja börn á aldrinum 1 árs til 5 ára.
Einkunnarorð leikskólans eru: Heilbrigð sál í hraustum líkama.
Við tökum vel á móti nýju og áhugasömu starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í mótun.
Við leitum að jákvæðu, stundvísu, ábyrgum og heiðarlegu starfsfólki til að ganga til liðs við metnaðarfullan og fjölbreyttan starfsmannahóp leikskólans.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ragnheiður Gunnarsdóttir, leikskólastjóri, Elsa María Gunnarsdóttir og Heiðar Örn Kristjánsson, aðstoðarleikskólastjórar í síma 570-4920 og 570-4830. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið urridabol@skolar.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennar
- Leyfisbréf til kennslu
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi
- Góð íslenskukunnátta og ritfærni er skilyrði. Miðað er við stig B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð tölvukunnátta
- Á Urriðabóli er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrarfrí, páska- og jólafrí
- Heilsustyrkur
- Viðverustefna
- Starfsmannafsláttur á leikskólagjöldum