Deildarstjóri við Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli í Garðabæ auglýsir eftir framsæknum og metnaðarfullum einstaklingi til að sinna starfi deildarstjóra á miðstigi. Deildarstjóri er faglegur leiðtogi og hluti af stjórnendateymi skólans. Í Hofsstaðaskóla eru 480 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 85 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum bæði námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu.
Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur með og undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra
- Er hluti af stjórnunarteymi skólans
- Ber ábyrgð á stjórnun á miðstigi skólans
- Skipulag, samræming og utanumhald varðandi skólanámskrá og námsmat
- Utanumhald um málefni nemenda varðandi ástundun, nám og líðan í samráði við foreldra
- Skipulag og framkvæmd daglegs skólastarfs með farsæld barna að leiðarljósi
- Forysta í skólaþróun
- Sinnir kennslu á viðkomandi skólastigi skv. kjarasamningi SÍ
- Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Reynsla af þátttöku í skólaþróunarverkefnum og teymisvinnu
- Kennslureynsla á grunnskólastigi
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi og reynsla af stjórnun æskileg
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Þekking á Leiðsagnarnámi og Uppeldi til ábyrgðar er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Góð tölvukunnátta
Auglýsing birt1. október 2024
Umsóknarfrestur9. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Skólabraut 5, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel
Umsjónarkennari óskast vegna forfalla
Helgafellsskóli
Deildarstjóri janúar 2025
Leikskólinn Stakkaborg
Verkefnastjóri í íþróttum- Stakkaborg
Leikskólinn Stakkaborg
Kennari í stoðþjónustu Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli
Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli
Umsjónarkennari í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Sérkennari í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Laus staða í Marbakka
Leikskólinn Marbakki
Kennari á yngsta stig
Vogaskóli
Skóla- og frístundaliði í Hraunsel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Stuðningsfulltrúi í fjölgreinadeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær