Leikskólinn Sólborg
Leikskólinn Sólborg
Leikskólinn Sólborg

Leikskólakennari

Leikskólinn Sólborg, sem er fjögurra deilda leikskóli við Vesturhlíð 1, auglýsir eftir leikskólakennara í fullt starf.

Vilt þú koma og vera með okkur í frábæru starfi í leikskólanum Sólborg? Við leggjum áherslu á leikinn í tvítyngdu umhverfi með döff og heyrandi börnum og starfsfólki.

Leikskólinn byggir á sterkum grunni samhents fagfólks og leggjum við áherslu á að öllu starfsfólki líði vel í vinnunni, sem skilar sér til barnanna og foreldra þeirra. Sólborg er sérhæfður leikskóli fyrir döff og heyrnarskert börn.

Sólborg er fjögurra deilda leikskóli við Vesturhlíð 1, 105 Reykjavík.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
  • Að leitast við að hvert barn fái viðfangsefni við sitt hæfi.
  • Að beita útsjónarsemi í að tryggja að börn fái tækifæri í leik og skapandi starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Frumkvæði í starfi, sveigjanleiki í samskiptum og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri íslensku kunnáttu.
  • Hæfni til að vinna í teymi
  • Táknmálskunnátta (íslenskt táknmál, ÍTM ) er frábær kostur
Auglýsing birt30. janúar 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vesturhlíð 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar