Leikskólinn Tjarnarskógur
Leikskólinn Tjarnarskógur
Leikskólinn Tjarnarskógur

Tjarnarskógur auglýsir sumarstörf

Tjarnarskógur auglýsir lausa til umsóknar stöðu í sumarafleysingu frá 1. maí til 1. september. Möguleiki á áframhaldandi ráðningu í haust. Athugið að leikskólinn er lokaður vegna sumarleyfa frá 30. júní - 5. ágúst. Möguleiki er á að fimmtan vikan 22. - 26. júlí verði opið ef fjöldi barna eða starfsfólks er nægilegur.

Leikskólinn Tjarnarskógur er 9 deilda leikskóli með 160 börn á tveimur starfsstöðvum. Leikskólinn Tjarnarskógur er að vinna að innleiðingu á Uppeldi til ábyrgðar og horfir til fjölgreindarkenningar Howard Gardners í starfsaðferðum sínum. Einkunnarorð skólans eru: gleði, virðing, samvinna og fagmennska.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn). Ef ekki fæst kennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi á að vinna með börnum.
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt29. janúar 2025
Umsóknarfrestur10. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tjarnarlönd 10, 700 Egilsstaðir
Skógarlönd 5, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar