

Leiðtogi íþrótta- og lýðheilsumála í Mosfellsbæ
Mosfellsbær auglýsir laust starf íþrótta- og lýðheilsufulltrúa. Leitað er eftir leiðtoga til að hafa forystu við uppbyggingu á sviði íþróttamála, lýðheilsu og almenningsíþrótta.
Fyrir dyrum stendur mikil uppbygging á aðstöðu fyrir íþróttafólk og íbúa í Mosfellsbæ. Íþrótta- og lýðheilsufulltrúi mun gegna lykilhlutverki í þeirri upp uppbyggingu í samvinnu við starfsmenn, íbúa, Aftureldingu og önnur íþróttafélög.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi verkefni á menningar-, íþrótta- og lýðheilsusviði Mosfellsbæjar. Leitað er eftir áhugasömum og sjálfstæðum einstaklingi með mikla þekkingu, viðeigandi reynslu og brennandi áhuga á íþrótta- og lýðheilsumálum. Þá þarf viðkomandi að búa yfir getu til að leiða teymisvinnu og virkt samstarf við aðila innan og utan sveitarfélagsins.
- Leiðandi þátttaka í undirbúningi stefnumörkunar á sviði íþrótta- og lýðheilsumála í samvinnu við íþrótta- og tómstundanefnd.
- Að hafa frumkvæði að nýjungum á sviði íþrótta- og lýðheilsumála og stuðla að skipulögðu starfi fyrir alla aldurshópa.
- Leiðandi í uppbyggingu á aðstöðu fyrir íþróttafólk og íbúa í Mosfellsbæ.
- Ábyrgð á framkvæmd aðgerðaáætlunar lýðheilsu- og forvarnarstefnu Mosfellsbæjar.
- Greining og miðlun upplýsinga á sviði íþrótta- og lýðheilsumála.
- Undirbúningur og eftirfylgni við fjárhagsáætlun á sviði íþrótta- og lýðheilsumála.
- Yfirumsjón með rekstri og skipulagningu starfs í íþróttamannvirkjum í samvinnu við stjórnendur, starfsmenn og íþróttafélög.
- Að styðja við og eiga frumkvæði að þróun samvinnu sveitarfélagsins við íþróttafélög í bænum og laða aðila til samstarf um lýðheilsuverkefni þvert á allt sveitarfélagið.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Meistaragráða sem nýtist í starfi er kostur.
- Víðtæk reynsla af íþrótta- og lýðheilsumálum.
- Þekking og reynsla af rekstri og áætlanagerð.
- Góð þekking á upplýsingatækni og framsetningu gagna.
- Rík þjónustulund og mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
- Geta til að sýna frumkvæði og tileinka sér nýjungar í starfi.
- Skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku sem og ensku.
Íslenska
Enska










