Leiðbeinandi með mjög góða íslenskukunnáttu óskast í Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf. Starfið er fólgið í að leysa af á öllum deildum leikskólans eftir þörfum. Mjög góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
Leikskólinn er staðsettur í Stangarholti rétt fyrir ofan Hlemm og er Klambratún í næsta nágrenni. Einkunnarorð leikskólans eru Leikum-Lærum-Njótum. Við leggjum áherslu á læsi og íslensku.
Nóaborg er fjögurra deilda leikskóli þar sem samtímis dvelja 74 börn. Húsnæðið er algjörlega endurnýjað og er vinnuaðstaða barna og starfsfólks góð.
Við leitum að áhugasömum einstaklingi með metnað og mjög góða íslenskukunnáttu. Starfið er laust nú þegar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri í síma 693-9830 eða með tölvupósti á netfangið anna.margret.olafsdottir@reykjavik.is
Sinna tilfallandi störfum sem deildarstjóri ákveður
Vera sveigjanlegur þar sem viðkomandi þarf að fara á allar deildir leikskólans eftir þörfum
Reynsla af starfi með börnum æskileg
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Mjög góð íslenskukunnátta
Vinnutímastytting
Samgöngustyrkur
Heilsuræktarstyrkur
Bókasafnskort
Menningarkort
Sundkort
Forgangur á leikskólaplássi fyrir börn starfsmanna þegar þau ná 1 árs aldri