Hjallastefnan
Hjallastefnan
Hjallastefnan

Lausar stöður í Árbæ á Selfossi

Leikskólinn Árbær á Selfossi leitast eftir að ráða í eftirfarandi stöður:

  • 100% staða hópstjóra / hópstýru á eldri kjarna tímabundið, eða út skólaárið 2024-2025, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
  • 100% staða í stoðþjónustu/afleysingu yngri kjarna tímabundið, eða út skólaárið 2024-2025, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Við óskum eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Árbær er rekinn af Hjallastefnunni og starfar samkvæmt hugmyndafræði hennar. Hjallastefnan er kærleiksmiðuð og skapandi lýðræðisstefna.

Við leitum að lífsglöðum, kærleiksríkum og skapandi kennurum/leiðbeinendum sem hafa áhuga á jafnrétti, sjálfbærni og lýðræði í skólastarfi.

Í Árbæ ríkir góður starfsandi sem einkennist af stuðningi, gleði og valdeflingu.

Við leitum að kennurum sem búa yfir

  • Áhuga á því að starfa samkvæmt hugmyndafræði Hjallastefnunnar
  • Jákvæðu hugarfari
  • Sveigjanleika
  • Samskiptahæfni
  • Hreinskiptni og áræðni
  • Skapandi og lausnamiðaðri hugsun

Góð íslenskukunnátta skilyrði fyrir ráðningu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf hópstjóra / hópstýru felur í sér 

  • Kennslu og umönnun leikskólabarna
  • Skipulag hópastarfs inni og úti
  • Foreldrasamskipti
  • Teymisvinnu

Starf innan stoðþjónustu felur í sér

  • Stuðningi við hópstjóra 
  • Kennslu og umönnun leikskólabarna 
  • Foreldrasamskipti
  • Afleysingar og önnur verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að 

  • Leikskólakennurum
  • Kennurum með leyfisbréf til kennslu á öðrum skólastigum 
  • Kennurum með aðra uppeldisfræðimenntun/háskólamenntun
  • Leiðbeinendum með aðra menntun/reynslu sem nýtist í starfi
  • Reynsla af leikskólastarfi mikill kostur
Fríðindi í starfi
  • 7 tíma viðvera daglega fyrir 100% stöður 
  • Kaffitímar / neysluhlé á eigin forræði innan 7 tímanna
  • Góður og hollur heimilismatur eldaður á staðnum
Auglýsing birt9. nóvember 2024
Umsóknarfrestur14. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Fossvegur 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar