Heilsuleikskólinn Holtakot
Heilsuleikskólinn Holtakot
Heilsuleikskólinn Holtakot

Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starfshlutfall. Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".

Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.

Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/

Leikskólar reknir af Garðabæ hafa til úthlutunar sérverkefnasjóð þar sem metnaðarfullir starfsmenn hafa tækifæri til að auka við laun sín.

Helstu verkefni og ábyrgð

•    Vinna að uppeldi og menntun barnanna undir stjórn deildarstóra
•    Vinna að faglegu starfi deildar
•    Tekur þátt í foreldrasamvinnu 

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
•    Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
•    Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
•    Ánægja af því að starfa með börnum
•    Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
•    Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
•    Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
•    Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Á Holtakoti er vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrarfría, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári
  • 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyir börn starfsmanna
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk.
Auglýsing birt8. nóvember 2024
Umsóknarfrestur22. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Breiðamýri, 225 Garðabæ
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar