Forfallakennsla við Flóaskóla
Flóaskóli er staðsettur í Villingaholti í Flóahreppi, í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi. Í skólanum eru um 110 nemendur í 1.-10. bekk og um 30 starfsmenn. Við skólann starfar öflugur og metnaðarfullur hópur fólks sem vinnur samhent að því að skapa jákvætt og uppbyggjandi vinnuumhverfi, hlúa vel að nemendum og stuðla að því að þeir nái að vaxa og dafna í námi og starfi. Í Flóaskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu, leiðsagnarnám og öfluga stoðþjónustu. Mikil áhersla er á list- og verkgreinar. Skólinn er UNESCO skóli, heilsueflandi grunnskóli og þátttakandi í grænfánaverkefninu. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði "Uppeldi til ábyrgðar" og unnið er markvisst með samskipti og líðan nemenda.
Laus er staða forfallakennara í um 30% starf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ eða viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Jónasdóttir skólastjóri í síma 7718342 eða í tölvupósti á thorunn@floaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2024, ráðið verður í starfið frá 1. desember 2024.
Að skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara.
Að vinna í teymi með öðrum starfsmönnum skólans.
Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra/forráðamenn og starfsfólk skólans.
Að stuðla að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og annað samstarfsfólk.
Kennari, uppeldismenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi, leyfisbréf til kennslu, reynsla að kennslu æskileg.
Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
Góð íslenskukunnátta og færni í upplýsinga- og tæknimálum.
Skipulögð vinnubrögð og hæfni í samvinnu.
Frumkvæð, sjálfstæði í vinnubrögðum og vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
Stundvísi og samviskusemi.