
Dekkjahöllin ehf
Dekkjahöllin hefur verið í rekstri í um 40 ár. Dekkjahöllin er með starfstöðvar á Akureyri, Egilsstöðum, Garðabæ og á tveimur stöðum Reykjavík. Fyrirtækið rekur hjólbarðaþjónustu á öllum starfstöðvum, smurstöðvar á Akureyri og Egilsstöðum og þvottastöð á Akureyri. Fyrirtækið er jafnframt innflutningsaðili sem starfar bæði á fyrirtækja og einstaklingsmarkaði. Dekkjahöllin er í eigu Vekra sem á m.a. Öskju, Lotus Car Rental, Una (Xpeng), Landfara og Hentar.
Í Dekkjahöllinni hefur ávallt verið lögð rík áhersla á fljóta og góða þjónustu. Jafnframt er áhersla á að selja úrval af vönduðum og góðum dekkjum fyrir kröfuharða ökumenn.
Mannauður fyrirtækisins er verðmætur og fjölmargir starfsmenn hafa fylgt fyrirtækinu í áratugi. Uppsöfnuð reynsla starfsmanna er gríðarleg. Til gamans má nefna að samanlagður starfsaldur þeirra 27 fastráðnu starfsmanna í lok árs 2020 voru tæp 275 ár eða 10 ár að meðaltali.
Framúrskarandi og til fyrirmyndar: Dekkjahöllin hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki frá upphafi mælinga eða frá 2010. Jafnframt hefur það fengið útnefningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri frá Viðskiptablaðinu og Keldunni síðan 2017.
Starfsmannafélag fyrirtækisins er starfrækt á öllum stöðum og skipuleggur gaman saman og skemmtilegar fyrirtækjaferðir.

Lagerstarfsmaður
Dekkjahöllin leitar að drífandi, nákvæmum og talnaglöggum aðila til að sinna lagerstörfum á höfuðborgarsvæðinu. Starfið er fjölbreytt og unnið í góðum hópi samstarfsfólks
Um framtíðarstarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öll almenn lagerstörf
- Umsjón dekkjahótels
- Afgreiðsla á pöntunum og millilagerafærslum
- Tiltekt og talningar á lagerum
- Útkeyrsla með vörur á milli dekkjaverkstæða eftir þörfum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð tölvukunnátta
- Bílpróf skilyrði, lyftarapróf kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Reynsla af lagerstörfum kostur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Bílpróf skilyrði
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt7. mars 2025
Umsóknarfrestur21. mars 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Miðhraun 18, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
BirgðahaldFrumkvæðiLagerstörfLyftaraprófSjálfstæð vinnubrögðÚtkeyrslaVöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Varahlutir - Selfoss
Aflvélar ehf.

Starfsfólk í vöruhús Samskipa
Samskip

Sumarstarf í vöruhúsi Icewear
ICEWEAR

Lagerstarfsmaður
Vélsmiðja Orms og Víglundar ehf.

Sölumaður
Dekkjahöllin ehf

Sala og áfylling í verslanir
TINNA EHF

Starfsmaður á verkstæði / Car mechanic
KúKú Campers Ehf.

Sumarstörf í lagna- og timburafgreiðslu BYKO Suðurnes
Byko

Starfsmaður í fataverkefni - sumarafleysingar
Fatasöfnun Rauða krossins

Bílstjóri og lyftaramaður - tímabundið starf
Fatasöfnun Rauða krossins

Starfsmaður í vöruhús JYSK
JYSK

Lager og útkeyrsla
Kemi ehf