

Læknir með lækningaleyfi - Hefur þú áhuga á rannsóknalækningum innan blóðmeinafræði?
Við sækjumst eftir lækni sem hefur áhuga á að kynna sér rannsóknarlækningar, nánar til tekið á blóðmeinafræði/ Blæðara og storkumeinamiðstöð, rannsóknarkjarna Landspítala.
Á rannsóknarkjarna (blóðmeinafræði og klínísk lífefnafræði) við Hringbraut og í Fossvogi starfa um 150 einstaklingar sem sinna greiningu blóðmeina og lífefnafræðilegri greiningu sjúkdóma allan sólarhringinn. Við sinnum einnig ráðgjöf varðandi blóðsegavandamál og blæðingar ásamt efirliti blæðara og segavörnum einstaklinga á warfarini. Starfshlutfall á blóðmeinafræðinni er 100% eða eftir samkomulagi og getur viðkomandi hafið störf sem fyrst.
Starfið er tímabundið í að minnsta kosti 6-12 mánuði eða samkvæmt nánara samkomulagi. Um er að ræða dagvinnu með sveigjanleika en einnig væri möguleiki á vöktum á lyflækningasviði ef áhugi er fyrir því.
Við rannsóknarlækningar starfa reyndir sérfræðilæknar ásamt öðrum læknum í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun.
Íslenska




























































