Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur, bráðateymi barna- og unglingageðdeildar

Metnaðarfullur hjúkrunarfræðingar óskast til starfa í bráðaþjónustu barna- og unglingageðdeildar Landspítala. Í boði er fjölbreytt og líflegt starf þar sem þverfagleg teymisvinna er í forgrunni.

Um er að ræða starf í dagvinnu en einnig getur möguleiki verið á vaktavinnu á legudeild barna- og unglingageðdeildar samhliða. Starfshlutfall er 80-100% og upphafsdagur er samkomulagsatriði.

Barna- og unglingageðdeild samanstendur af þremur deildum á Landspítala; legudeild, dagdeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Á deildunum starfa samtals um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma.

Markmið bráðateymis er að sinna bráðatilvikum vegna geðræns vanda. Þjónusta bráðateymis á dagvinnutíma fer fram á göngudeild barna- og unglingageðdeildar þar sem tekið er á móti börnum og fjölskyldum þeirra í bókuð bráðaviðtöl og eftirfylgdarviðtöl. Utan dagvinnutíma fer bráðaþjónusta við börn með bráðan geðrænan vanda fram á bráðamóttökum Landspítala með aðkomu fagfólks barna- og unglingageðdeildar.

Hjúkrunarfræðingur mun fá markvissa fræðslu og þjálfun í tengslum við starfið og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla sem nýtist í starfi
Framhaldsnám sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði
Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar, frumkvæði og geta til að takast á við krefjandi verkefni
Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar
Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli
Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur
Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar
Hreint sakavottorð
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfar í þverfaglegu bráðateymi á göngudeild
Sinnir mati á bráðum geðrænum vanda barna auk eftirfylgdar
Samvinna við fagaðila í nærumhverfi
Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu
Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur13. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalbraut, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (25)
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali