

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Hvammi
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Hvammi í Kópavogi. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í spennandi starfsumhverfi þar sem áhersla er á nýsköpun og framþróun.
Til greina kemur að ráða áhugasaman almennan lækni sem hefur hug á sérnámi í heimilislækningum, fáist ekki sérfræðingur í starfið. Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt sérnámslæknum, sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum og riturum. Heilsugæslunni Hvammier fyrst og fremst ætlað að veita íbúum Kópavogs þjónustu en allir eru velkomnir á stöðina. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Starfssvið heimilislæknis er víðtækt og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd, vaktþjónustu og kennslu nema. Hann veitir fræðslu og upplýsingar og leiðbeinir skjólstæðingum og aðstandendum. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
- Íslenskt lækningaleyfi
- Sérfræðimenntun í heimilislækningum
- Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Reynsla af kennslu er æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
- Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
- Góð almenn tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Góð enskukunnátta
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska






















