

Teymisstjóri á endurhæfingardeild Grensási
Við leitum eftir öflugri og jákvæðri fagmanneskju í spennandi starf teymisstjóra sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í áframhaldandi þróun og uppbyggingu endurhæfingarþjónustu á Grensási.
Teymisstjóri gegnir lykilhlutverki í samhæfingu þverfaglegs samstarfs og hefur yfirsýn yfir framgang meðferðar sjúklinga á legudeildinni. Markmiðið er að tryggja samfellda, markvissa og árangursríka endurhæfingu fyrir einstaklinga eftir alvarleg veikindi eða slys. Skilyrði er að viðkomandi hafi lokið heilbrigðismenntun sem nýtist í starfi, þá til dæmis hjúkrunarfræði, sjúkraliðanámi eða félagsráðgjöf.
Á Grensási er veitt frumendurhæfing eftir erfið veikindi og slys. Starfsemin er fjölbreytt og áhersla er á þverfaglega samvinnu. Starfsánægja er mikil og starfsmannavelta lítil, þetta er dýrmætt tækifæri til að kynnast öflugri teymisvinnu í þverfaglegu umhverfi. Síðastliðin ár hefur mikil uppbygging verið í starfseminni, þjálfunarsundlaug verið endurgerð og hannaður meðferðargarður við húsið. Glæsileg viðbygging verður opnuð árið 2027 og verður öll aðstaða þar eins og best verður á kosið.
Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi og er starfshlutfall 100%. Starfið er að mestu leyti dagvinna en kostur er á kvöld- og helgarvinnu eftir samkomulagi.
Íslenska




























































