

Aðstoðardeildarstjóri á Skjóli, blundar í þér stjórnandi?
Frábært tækifæri til að hefja stjórnunarferillinn. Skjól óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra í 100% starf á starfsemi á tveimur deildum, 4. hæðinni og Laugaskjóli.
4 hæðin er almenn hjúkrunarheimilisdeild þar sem búa 29 einstaklingar, á deildinni er veitt sólarhringsþjónusta og rúmgóð setustofa sem sameinar ganga. Samvera og tómstundarstarf er í boði daglega fyrir einstaklinga ásamt sjúkraþjálfun.
Laugaskjól er hjúkrunarsambýli fyrir einstaklinga með heilabilun á fyrri stigum. Íbúar eru níu talsins og búa allir á einbýlum. Húsið er tveggja hæða. Íbúum þar stendur til boða öll sú þjónusta sem veitt er á Skjóli, og geta sótt viðburði sem haldnir eru.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með öðrum stjórnendum og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum, vellíðan og öryggi sjúklinga.
Er lykilaðili í faglegu og metnaðarfullu starfi þar sem virðing, vellíðan og virkni eru leiðarljós í leik og starfi.
- Ábyrgð og skipulagning á hjúkrunarþjónustu í samráði við deildarstjóra og í fjarveru hans.
- Þátttaka í daglegri hjúkrun heimilismanna, sér um eftirlit og mat ágæðum hjúkrunarþjónustu.
- Starfið felur í sér að vera staðgengill hjúkrunardeildarstjóra.
- Sérstök ábyrgð á tilteknum verkefnum og gæðastarfi.
- Almenn hjúkrunarstörf og vaktstjórn að hluta.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði.
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður.
- Færni í mannlegum samskiptum og áhugi á að takast á við nýjar áskoranir.
- Stjórnunarreynsla er kostur en ekki skylda.
- Reynsla af RAI-mælitækinu er kostur.
- Jákvætt viðmót og samskiptahæfni.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Íslenska










