

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa
Við leitum að öflugum hjúkrunarfræðing til starfa hjá okkur. Í fyrirtæki sem fer ört vaxandi, þar sem fjölbreytt og spennandi verkefni bíða. Vegna aukinna umsvifa viljum við bæta við okkur öflugu og jákvæðu starfsfólki sem hefur áhuga á að starfa í kraftmiklu og skemmtilegu teymi.
Við leggjum mikla áherslu á markvissa og vandaða þjálfun og tryggjum að allt starfsfólk fái stuðning og fræðslu í þeim sérhæfðu verkefnum sem unnin eru.
Við leitum að metnaðarfullum, röskum og jákvæðum hjúkrunarfræðingi sem blómstrar í fjölbreyttu starfi í hröðu og lifandi starfsumhverfi.
Starfshlutfall er samningsatriði.
-
Undirbúa skurðstofuna og sjá um verkfæri og búnað fyrir og eftir aðgerðir
-
Aðstoða við aðgerðir
-
Fylgjast með vellíðan sjúklings fyrir og á meðan á aðgerð stendur
-
Taka þátt í teymisvinnu og stuðla að góðu og öruggu starfsumhverfi
-
Skrá upplýsingar og fylgja verklagsreglum
- Sérnám í skurðhjúkrun er kostur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- BS-próf í hjúkrunarfræði
Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi með faglegan metnað og góða nærveru.
Starfsumhverfið hentar vel fyrir þá sem eru skipulagðir og þrífast í hröðu og fjölbreyttu umhverfi.
Íslenskukunnátta er mikill kostur, en ef einstaklingur talar ekki íslensku er skilyrði að hann geti tjáð sig auðveldlega og skilið ensku.
Enska
Íslenska










