Sóltún
Sóltún

Framkvæmdastjóri hjúkrunar og heilbrigðissviðs

Sóltún heilbrigðisþjónusta leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra hjúkrunar og heilbrigðissviðs. Um er að ræða lykilstöðu í stjórnendateymi Sóltúns þar sem þú hefur áhrif á þróun þjónustu, gæði og öryggi í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu.

Við leitum að leiðtoga sem brennur fyrir fagmennsku, gæðum og velferð íbúa og hefur bæði faglega dýpt og leiðtogahæfni til að þróa starfsemi til framtíðar. Í starfinu felst að leiða og móta faglegt starf hjúkrunar, styðja við starfsfólk og vinna náið með stjórnendum og samstarfsaðilum að því að tryggja framúrskarandi þjónustu.

Ef þú hefur metnað fyrir heilbrigðisþjónustu sem byggir á þekkingu, virðingu og stöðugum umbótum gæti þetta verið tækifærið fyrir þig.

Helstu ábyrgðarsvið:

  • Fagábyrgð á hjúkrun - Ber faglega ábyrgð á allri hjúkrun hjá félaginu og tryggir að þjónusta sé í samræmi við lög, reglugerðir og fagleg viðmið.
  • Stjórn og stefnumótun - Tekur þátt í mótun stefnu og áætlana, og tryggir að þær séu innleiddar í daglegt starf. Situr í framkvæmdaráði Sóltúns.
  • Gæði og öryggi - Tryggir að virkt gæðakerfi sé til staðar, fylgist með gæðavísum og leiðir umbótaverkefni, frávikavinnu og öryggismál.
  • Eftirlit og eftirfylgni - Metur árangur þjónustu, sinnir úttektum og tryggir úrbætur eftir þörfum.
  • Fræðsla og hæfni starfsmanna - Mótar fræðslustefnu, skipuleggur þjálfun og tryggir að hæfni starfsmanna sé í samræmi við lög, gæðakröfur og þarfir íbúa.
  • Samskipti og samvinna - Vinnur náið með öðrum stjórnendum, heilbrigðisstarfsfólki, aðstandendum og ytri samstarfsaðilum.
  • Klínísk ábyrgð - Tryggir að sérhæfð fagþekking sé til staðar og að rétt sé brugðist við í flóknum eða alvarlegum aðstæðum.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi.
  • Framhaldsmenntun í stjórnun, hjúkrunarfræðum, gæðastjórnun eða sviðum sem gagnast í starfi (t.d. MS/MBA).
  • Reynsla af stjórnunar- eða leiðtogastörfum, helst innan heilbrigðisþjónustu eða hjúkrunar.
  • Þekking og reynsla af gæðastarfi, öryggismálum og innleiðingu verklags.
  • Reynsla af stefnumótun og umbótastarfi innan heilbrigðisgeirans er mikill kostur.
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og faglegri samvinnu, bæði innan stofnunar og við utanaðkomandi aðila.
  • Mikil hæfni í framsetningu efnis, bæði í ræðu og riti.
  • Skipulagshæfni og hæfni til að leiða breytingar á jákvæðan og markvissan hátt.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt, sýna frumkvæði og taka faglegar ákvarðanir í krefjandi aðstæðum.


Hlutverk Sóltúns er að auka velsæld með fjölbreyttri heilbrigðisþjónustu í fremstu röð þar sem áhersla er á aukin lífsgæði og stuðning í daglegu lífi eldra fólks.

Við viljum skapa hlýlegt og nærandi samfélag þar sem þjónustuþegar og starfsfólk upplifir öryggi og vellíðan. Við leggjum áherslu á framúrskarandi umönnun, persónulega og faglega þjónustu, fjölbreyttar lausnir, jákvæða forystu, gróskuhugarfar og framþróun.

Undir Sóltúni heilbrigðisþjónustu eru rekin hjúkrunarheimilin Sóltún Reykjavík, Sóltún Sólvangi, Sóltún Heilsusetur og Sóltún Heima.


Umsóknarfrestur er til og með 18. mars nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) og Jensína Kristín Böðvarsdóttir (jensí[email protected]).

Auglýsing birt6. mars 2026
Umsóknarfrestur18. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sóltún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar