

Söluráðgjafi í stóma- og þvagleggjaþjónustu
Við leitum að heilbrigðismenntuðum starfsmanni í afleysingu vegna fæðingarorlofs til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Um er að ræða ráðgjöf, sölu og þjónustu á stóma- og þvagleggjavörum hjá Stuðlabergi heilbrigðistækni. Starfinu fylgja einnig innkaup á vörum fyrir þjónustuna. Einnig mun viðkomandi sinna tilfallandi afleysingum í ráðgjöf til kvenna eftir skurð- og brjóstaaðgerðir.
Starfssvið
- Móttaka, ráðgjöf og sala
- Innkaup og vöruáfyllingar
Hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Fagleg vinnubrögð og skipulag
- Rík þjónustulund og nærgætni
Umsóknarfrestur er til 20. mars 2026. Ferilskrá með mynd skal fylgja umsókn. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Um er að ræða fullt starf á starfsstöð félagsins að Stórhöfða 25. Móttaka viðskiptavina er á 2. hæð og bjóðum við viðskiptavinum okkar upp á hlýlegt umhverfi og gott næði í afgreiðslu.
Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. er rótgróið þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði sem býður fagaðilum og almenningi vandaðar heilbrigðisvörur og faglega ráðgjöf.
Fjölskyldufyrirtækin Stuðlaberg og Eirberg hafa stutt við bætta heilsu viðskiptavina sinna í 25 ár. Fyrirtækin byggja á traustum faglegum grunni á heilbrigðissviði en meðal starfsfólks eru hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi og aðrir sérfræðingar í velferðartækni.
Íslenska
Enska










