Rammagerðin
Rammagerðin
Rammagerðin

Söluráðgjafar í hlutastarfi óskast í verslanir Rammagerðarinnar.

Söluráðgjafar í hlutastarfi óskast í verslanir Rammagerðarinnar.

Við hvetjum fyrri umsækjendur að sækja aftur um.

Rammagerðin er rammíslensk gjafavöruverslun sem leggur áherslu á íslenska hönnun og handverk. Rammagerðin var stofnuð árið 1940 sem rammagerð en seldi svo ullarvarning og fatnað svo áratugum skipti.

Rammagerðin hefur þróast í tímanna rás og leggur áherslu á að selja íslenska hönnun og handverk. Rammagerðin, sem nú hefur verið starfrækt í 85 ár, rekur í dag 7 verslanir með vörur frá yfir 400 íslenskum hönnuðum og handverksmönnum.

Rammagerðin óskar eftir að ráða öfluga og drífandi söluráðgjafa í hlutastarfi. Við leggjum áherslu á góða þjónustu og leitum því af aðila með reynslu af sölumennsku og þjónustu til að ganga til liðs við okkur.

Úrvinnsla umsókna hefst strax.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina í verslun.
  • Eftirfylgni sölu.
  • Framstillingar.
  • Birgðarumsjón og áfyllingar.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Einstaklingur með brennandi áhuga á sölumennsku.
  • Áhugi og þekking á íslenskri hönnun er kostur.
  • Rík þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar.
  • Hafir frumkvæði, sért virkur og drífandi starfskraftur.
  • Getir leyst vandamál á sjálfstæðan og ábyrgðarfullan hátt.
  • Góð tölvu- og tungumálakunnátta.
  • Stundvísi, áreiðanleiki og reglusemi
  • Enskukunnátta er skilyrði.
  • Íslenskukunnátta er kostur.
  • Kunnátta í öðrum tungumálum er mikill kostur.
Fríðindi í starfi

Frábær fríðindi fyrir rétta aðilann

  • Afsláttur í verslunum Rammagerðarinnar og samstarfsaðilum.
  • Árskort í Listasafni Reykjavíkur.
  • Símastyrkur.
Auglýsing birt6. mars 2026
Umsóknarfrestur1. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Laugavegur 13, 101 Reykjavík
Laugavegur 31, 101 Reykjavík
Skólavörðustígur 12, 101 Reykjavík
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar