

Viðskiptastjóri lykil viðskiptavina – Opinber geiri
Sem viðskiptastjóri Fortinet Inc, með áherslu á opinberar stofnanir og fyrirtæki á íslandi ertu kominn í teymi færustu sérfræðinga heims á sviði netöryggis. Hjá Fortinet starfa yfir 15 þúsund starfsmenn með aðsetur víða um heim, m.a. hér á Íslandi.
Hagnýting gervigreindar og samtenging lausna í síbreytilegum heimi netöryggisógna setur Fortinet á stall sem leiðandi framleiðanda á þessu sviði á heimsvísu. Lausnirnar eru nýttar hjá stofnunum og fyrirtækjum af öllum stærðum og geirum samfélagsins, hér á landi og um allan heim.
Þitt hlutverk er að veita opinberum stofnunum og fyrirtækjum ráðgjöf og selja lausnir sem leysa áskoranir þeirra tengdum rekstri, netöryggi, hagnýtingu gervigreindar, reglugerðum og fleira. Þessi ráðgjöf er unnin í nánu samvinnu við aðra sérfræðinga Fortinet og samstarfsaðila okkar hér á landi.
Fortinet bíður vel samkeppnishæf laun og önnur fríðindi.
Í Fortinet teyminu hér á landi starfa 7 starfsmenn og við erum að bæta við áhugasömum einstaklingum í hópinn.
- Gera og fylgja eftir áætlunum sem styðja við markmið starfsins.
- Leiða sölu- og markaðssókn Fortinet á tilteknum mörkuðum.
- Búa til og halda utanum viðskiptasambönd ásamt því að byggja upp tækifæri þeim tengdum sem styðja við vaxta markmið og þarfir viðskiptavina.
- Ábyrgð á eigin sölupípu og tekju markmiðum.
- Leiða saman þarfir viðskiptavina, lausnaframboð Fortinet og íslenska samstarfsaðila.
- Vinna með öðru samstarfsfólki Fortinet á Íslandi og erlendis s.s. tæknilegum sérfræðingum, markaðsdeild og öðrum viðskiptastjórum.
- Þekking og reynsla af uppbyggingu viðskiptatengsla og söluráðgjöf er skilyrði.
- Þekking á sviði á net- og upplýsingaöryggis og/eða annarra öryggislausna.
- Reynsla af því að halda kynningar fyrir viðskiptavini.
- Vera markmiða drifinn í þínum verkefnum.
- Eiga auðvelt með að aðlagast síbreytilegu umhverfi tækninnar.
- Gott vald á ensku og íslensku skilyrði.
- Geta ferðast vegna starfsins til Evrópu og Ameríku.
Íslenska
Enska
Danska





