Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Hjúkrunarfræðingur í skaðaminnkandi verkefni - Ylja

Hjúkrunarfræðingur í skaðaminnkandi verkefni – Ylja 50-80%

Viltu vinna mikilvægt og gefandi starf sem hefur bein áhrif á líf fólks í viðkvæmri stöðu?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að hjúkrunarfræðingi í skaðaminnkunarverkefni félagsins, neyslurýmið Ylju.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir hjúkrunarfræðing eða annan heilbrigðismenntaðan einstakling sem hefur áhuga á skaðaminnkun, mannréttindum og notendamiðaðri heilbrigðisþjónustu.

Hvað er Ylja?

✔️ Ylja er fyrsta neyslurýmið á Íslandi – skaðaminnkandi úrræði fyrir einstaklinga sem nota vímuefni í æð.
✔️ Markmið verkefnisins er að auka lífsgæði og bæta heilsufar þeirra sem nota reglubundið vímuefni í æð.
✔️ Neyslurými eru lagalega vernduð umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta neytt ávana- og fíkniefna undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks, með fyllstu hreinlætis-, öryggis- og sýkingavörnum.
✔️ Þessi úrræði eru starfrækt víða um heim og hafa sýnt fram á mikinn samfélagslegan ávinning bæði fyrir einstaklingana sjálfa og samfélagið í heild.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita heilbrigðisþjónustu í neyslurými Ylju með áherslu á skaðaminnkun og heilsuvernd
  • Standa vaktina í neyslurými ásamt starfsfólki
  • Þróa og innleiða verklagsreglur um heilbrigðisverklag fyrir neyslurými í samstarfi við hjúkrunarfræðing skaðaminnkunarteymisins
  • Veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf til einstaklinga í jaðarstöðu
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd skaðaminnkun

Hæfniskröfur og eiginleikar sem við leitum að

  • Hjúkrunarfræði
  • Góð þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar er skilyrði
  • Góð samskiptahæfni og reynsla í vettvangsstarfi er kostur
  • Þekking á málefnum og starfi Rauða krossins er kostur
  • Hæfni til að vinna í notenda- og áfallamiðaðri heilbrigðisþjónustu
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál eru kostur

Hvað býður Rauði krossinn upp á?

🚴 Samgöngustyrkur – Stuðningur við vistvænar samgöngur
🏋️ Líkamsræktarstyrkur – Heilsueflandi stuðningur

📅 Umsóknarfrestur: Umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum – viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð – við förum yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.

📩 Nánari upplýsingar:
Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri
✉️ [email protected]

Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 5, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar