STOÐ
STOÐ

Spennandi starf á heilbrigðistæknimarkaði

Viltu vera í hópi metnaðarfullra starfsmanna hjá vaxandi fyrirtæki á heilbrigðistæknimarkaði? STOÐ leitar að starfskrafti fyrir hjúkrunarvörur og lækningatæki í fjölbreytt og krefjandi starf viðskiptastjóra.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á heilbrigðistækni, nýtur þess að byggja upp traust viðskiptasambönd og vill hafa raunveruleg áhrif á innleiðingu og notkun lausna í heilbrigðisþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Markaðssetning á hjúkrunarvörum og lækningatækjum til heilbrigðisstofnana
  • Innleiðing á nýjum vörum auk fræðslu og eftirfylgni
  • Tengslamyndun og gott samstarf við viðskiptavini
  • Samskipti við erlenda birgja
  • Greining vaxtartækifæra í verkefnum tengd nýjum spítala
  • Þátttaka á ráðstefnum og fundum innanlands og erlendis
  • Útboðs- og tilboðsgerð
  • Vörustýring og þátttaka í þróun vöruframboðs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hjúkrunarfræði eða önnur heilbrigðismenntun er skilyrði
  • Þekking á sviði lækningatækja, tækni og hugbúnaðalausna er kostur
  • Reynsla af sambærilegu starfi eða á heilbrigðisstofnunum er kostur
  • Frumkvæði, drifkraftur og jákvætt viðmót
  • Góðir skipulagshæfileikar og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt4. mars 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Vörustjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar