

Grundarheimilin - Læknir
Grundarheimilin óska eftir að ráða metnaðarfullan og ábyrgan lækni til starfa. Starfið felur í sér læknisþjónustu við íbúa á heimilunum Grund, Mörk og Ás.
Starfið er fyrst og fremst unnið á dagvinnutíma, en lækni stendur einnig til boða að taka gæsluvaktir eftir nánara samkomulagi. Í boði er bæði hluta- og fullt starf og er starfshlutfall samkomulagsatriði.
Grundarheimilin eru fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa um 700 manns. Lögð er áhersla á góðan starfsanda, faglegt samstarf og hvetjandi starfsumhverfi. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í þverfaglegu teymi heilbrigðisstarfsfólks, þar sem vönduð þjónusta og fagmennska eru í forgrunni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Læknisumsjón íbúa.
- Mat, greining, meðferð og eftirlit sjúkdóma.
- Lyfjarýni og endurskoðun lyfjameðferðar.
- Yfirferð rannsóknarniðurstaðna og eftirfylgd.
- Samstarf við aðstandendur og þátttaka í fjölskyldufundum eftir þörfum.
- Þátttaka í teymisfundum og þróun starfseminnar.
- Möguleg þátttaka í gæsluvöktum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt lækningaleyfi.
- Sérfræðimenntun er kostur.
- Góð íslenskukunnátta.
- Hæfni til að starfa sjálfstætt og sýna frumkvæði.
- Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til teymisvinnu.
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi.
Starfað er eftir Eden hugmyndafræðinni, þar sem lögð er áhersla á lífsgæði, virðingu og einstaklingsmiðaða umönnun.
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi.
Starfshlutfall og ráðningarform er samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingar veitir:
Bjarki Steinn, yfirlæknir
Íslenska









