

Fagstjóri lækninga - Heilsugæslan Efra Breiðholti
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir starf fagstjóra lækninga við Heilsugæsluna Efra Breiðholti laust til umsóknar.
Fagstjóri lækninga ber ábyrgð á skipulagningu læknisþjónustu með þjónustuþarfir skjólstæðinga ávallt í fyrirrúmi. Starf fagstjóra er ábyrgðarmikið, krefjandi og reynir á frumkvæði, skipulagshæfileika og samskiptahæfni viðkomandi.
Heilsugæslan Efra Breiðholti leggur áherslu á góðan starfsanda og vinnur eftir þjónustulíkani þar sem teymisvinna fjölbreyttra heilbrigðisstétta og forflokkun erinda eru í forgrunni.
Markmiðið með teymismiðaðri heilsugæslu er að nýta sérfræðiþekkingu allra heilbrigðisstétta sem best. Þetta er þróun sem styrkir þverfaglega samvinnu og gefur læknum meira svigrúm til að einbeita sér að málum skjólstæðinga sem virkilega þurfa á læknisaðstoð að halda. Öll erindi eru forflokkuð af reynslumiklum hjúkrunarfræðingum og komið í réttan farveg hjá þeim heilbrigðisstarfsmanni sem er best til þess fallinn að leysa úr því.
Starfshlutfall er 100% ótímabundið í starf til frá og með 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulag
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
-
Skipulag, verkstjórn og samhæfing innan fagsviðs með forstöðumanni, í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
-
Er forstöðumanni innan handar við daglegan rekstur stöðvar og er staðgengill hans
-
Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar
-
Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga
-
Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
-
Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
-
Hefur umsjón með sérnámslæknum stöðvar, veitir fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn stöðva
-
Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða
- Sérfræðingur í heimilislækningum
-
Reynsla af starfi í heilsugæslu skilyrði
-
Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar
-
Nám í stjórnun er kostur
-
Hæfni í mannlegum samskiptum
-
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
-
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
-
Reynsla af rekstri innan heilbrigðisþjónustu æskileg
-
Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
-
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Íslenska
Enska




















