Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Efra Breiðholti

Heilsugæslan Efra Breiðholti óskar eftir að ráða sérfræðing í heimilislækningum. Um er að ræða 100% ótímabundið starf en möguleiki er á lægra starfshlutfalli. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Heilsugæslan Efra Breiðholti leggur áherslu á góða vinnustaðamenningu og vinnur eftir þjónustulíkani þar sem teymisvinna fjölbreyttra heilbrigðisstétta og forflokkun erinda eru í forgrunni.

Markmiðið með teymismiðaðri heilsugæslu er að nýta sérfræðiþekkingu allra heilbrigðisstétta sem best. Þetta er þróun sem styrkir þverfaglega samvinnu og gefur læknum meira svigrúm til að einbeita sér að málum skjólstæðinga sem virkilega þurfa á læknisaðstoð að halda. Öll erindi eru forflokkuð af reynslumiklum hjúkrunarfræðingum og komið í réttan farveg hjá þeim heilbrigðisstarfsmanni sem er best til þess fallinn að leysa úr því.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt og felst m.a. í almennri læknismóttöku, heilsuvernd og bráðaþjónustu á daginn. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt lækningaleyfi

  • Sérfræðimenntun í heimilislækningum

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð

  • Reynsla af kennslu er æskileg

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu

  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Íslenskukunnátta skilyrði

Auglýsing birt25. nóvember 2026
Umsóknarfrestur10. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hraunberg 6, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.LæknirPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar