
Hólabrekkuskóli
Hólabrekkuskóli er framsækinn grunnskóli sem leggur áherslu á skapandi vinnu með nemendum. Ef þú ert metnaðarfullur kennari sem hefur gaman af því að vinna í faglegum og skemmtilegum starfsmannahópi þá viljum við fá þig til liðs við okkur.
ÍSAT kennari Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli óskar eftir kennara til starfa í stoðþjónustu skólans skólaárið 2025 - 2026. Mikil gróska einkennir skólaþróun í Hólabrekkuskóla og áhersla er lögð á skapandi starf, teymiskennslu, fjölbreytta gagnreynda kennsluhætti og uppbyggileg samskipti. Leiðarljós skólans er virðing, gleði og umhyggja.
Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur og 80 starfsmenn. Sérstök áhersla er lögð á mál og læsi.
Ef þú ert framsækinn kennari og hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu skólastarfi þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega fá þig til liðs við okkur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Íslenskukennsla fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku.
- Skapandi vinna með nemendum með áherslu á lestur og málörvun.
- Teymiskennsla - fagleg vinnubrögð og samvinna.
- Samstarf við starfsfólk, foreldra og sérfræðinga utan skólans.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
- Vinna að jákvæðum skólabrag.
- Önnur afmörkuð verkefni innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leitað er eftir jákvæðum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum fagmanni.
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
- Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi.
- Íslenskukunnátta á stigi C2 samskvæmt samevrópska matskvarðanum.
- Stundvísi og samviskusemi.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngusamningur
- Frítt í sund með ÍTR kortinu
- Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu
Auglýsing birt11. apríl 2025
Umsóknarfrestur25. apríl 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Bakkastaðir 2, 112 Reykjavík
Suðurhólar 10, 111 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Klettaborg

Umsjónarkennari í 1. bekk - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir deildastjóra í 100
Heilsuleikskólinn Holtakot

Ertu framsækinn kennari?
Hörðuvallaskóli

Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólann Hamra.
Leikskólinn Hamrar

Sjálandsskóli óskar eftir umsjónarkennara
Garðabær

Kennarar í Auðarskóla skólaárið 2025-2026
Auðarskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi
Egilsstaðaskóli

Faggreinakennari á unglingastigi
Egilsstaðaskóli

Umsjónarkennari á miðstigi
Egilsstaðaskóli

Íþróttakennari
Egilsstaðaskóli

Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær