Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Húsasmíðameistari – Umhverfis- og skipulagssvið

Umhverfis- og skipulagssvið óskar eftir að ráða starfsmann í starf húsasmiðameistara í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar. Þjónustumiðstöðin sér um umhirðu á bæjarlandinu og um margvíslega þjónustu og framkvæmdir fyrir bæinn, stofnanir og íbúa. Á umhverfis- og skipulagssviði eru um 50 stöðugildi. Um er að ræða 100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almennur rekstur á trésmíðaverksæði hvað varðar að öll tæki séu í lagi og öryggismál höfð í öndvegi
  • Umsjón, eftirlit, viðhald og viðgerðir á timburverki á opnum svæðum svo sem girðingum, útibekkjum, göngubrúm, tröppum, pöllum, leiktækjum o.fl.
  • Ýmis nýsmíði á opnum svæðum, á opnum leikvöllum, á stofnanalóðum og við fasteignir og stofnanir bæjarins
  • Kemur að viðhaldi á húsnæði Húsnæðisskrifstofu í samvinnu við starfsmenn hennar
  • Ýmis ráðgjöf varðandi viðhalds- og nýsmíði bæði á bæjarlandi og við framkvæmdir við stofnanir
  • Framkvæmir úttektir og skoðanir á fasteignum bæjarins með tilliti til viðhalds og framkvæmda s.s. vegna leka og raka í húsnæði
  • Gerir verðkannanir og leitar eftir tilboðum í efni frá birgjum vegna ýmissa verkefna á vegum bæjarins
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Meistarabréf í húsasmíði
  • Almenn og góð reynsla af trésmíðavinnu eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Almenn, góð tölvukunnátta
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Þjónustulund og jákvæðni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Íslenskukunnátta er skilyrði

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um störfin veita Hafsteinn Viktorsson forstöðumaður þjónustumiðstöðvar í síma í gegnum tölvupóst:[email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar n.k.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur20. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurhella 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar